Skip to product information
Brúðkaupskrísa
3.990 kr
Stærsti dagur lífsins – og tölfræðilega sá líklegasti til að klikka. Brúðkaupskrísa er svaramaðurinn sem bregst aldrei.
Í settinu er allt sem þarf:
• Saumasett – fyrir hnappinn sem valdi rangan tíma
• Blettapenni – fyrir rauðvínið á hvíta kjólnum
• Hælsærisplástrar – nýju skórnir hlífa engum
• Verkjatöflur
• Öryggisnælur
• Myntur og vasaklútur „fyrir athöfnina"
Nett sett í jakkavasann eða veskið. Fullkomið í steggjunina, gæsunina – eða handa svaramanninum sem tekur hlutverkið alvarlega.